TFW Training For Warriors Akureyri
Þjálfarateymið

Vottaðir styrktarþjálfarar á Akureyri

Öflugur hópur þjálfara með TFW vottanir og mikla reynslu. Við erum hér til að hjálpa þér að ná markmiðum þínum.

Egill Ármann Kristinsson
Yfirþjálfari og eigandi

Egill Ármann Kristinsson

Egill Ármann er eigandi og yfirþjálfari TFW Akureyri. Hann er ÍAK einkaþjálfari, TFW Level 1 og Level 2, UEFA B þjálfarapróf í fótbolta með fram því að hafa sótt alls kyns námskeið eins og t.d. styrktþjálfun barna og unglinga.

Íris Fönn Gunnlaugsdóttir
Þjálfari og eigandi

Íris Fönn Gunnlaugsdóttir

Íris Fönn er eigandi og þjálfari hjá TFW Akureyri. Hún er ÍAK einkaþjálfari, TFW Level 1 og Level 2, hársnyrtimeistari og andlegur einkaþjálfari. Íris hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum alls konar fyrirlestra og námskeið í gegnum árin.

Elsa Dóra Ómarsdóttir
Þjálfari

Elsa Dóra Ómarsdóttir

Elsa Dóra er þjálfari hjá okkur í TFW Akureyri. Hún hefur lokið bæði Level 1 og Level 2 þjálfaranámskeiðum og hefur mikla reynslu á þessu sviði. Elsa Dóra hefur einnig æft hjá okkur í gegnum eina meðgöngu og tekið foreldranámskeið, sem sýnir hennar skuldbindingu og áhuga á heilsu og velliðan.

Greta Huld Mellado
Þjálfari

Greta Huld Mellado

Greta Huld er þjálfari hjá TFW Akureyri með TFW Level 1 og Level 2 réttindi. Hún er einnig fasteignasali, mikill áhugamaður um íþróttir og hreyfingu, virkilega drífandi og ákveðin sem vill sjá fólk gera hlutina rétt og á réttum forsendum.

Ragna Baldvinsdóttir
Íþróttafræðingur / Þjálfari

Ragna Baldvinsdóttir

Ragna er íþróttafræðingur sem hefur lokið bæði TFW Level 1 og Level 2 þjálfaranámskeiðum. Hún hefur þjálfað okkur í TFW Akureyri um árabil og hefur æft vel í gegnum meðgöngu og eftir meðgöngu. Ragna er einnig íþróttakennari í Þelamerkurskóla.

Kristín Hólm Reynisdóttir
Foreldratíma þjálfari

Kristín Hólm Reynisdóttir

Kristín Hólm er önnur af tveimur þjálfurunum okkar í TFW Foreldratímunum. Kristín er ljósmóðir og hefur auk þess aflað sér þekkingar á þjálfun fyrir og eftir fæðingu. Hún hefur verið í TFW í fjölmörg ár og er mikill styrkur fyrir okkur.

Lovísa Oktovía Eyvindardóttir
Þjálfari

Lovísa Oktovía Eyvindardóttir

Lovísa hefur lokið TFW Level 1 og Level 2. Hún byrjaði sem nemandi í Foreldratímunum hjá okkur, þaðan kom hún í almenna tíma, var Warrior Ársins hjá TFW og síðan þjálfari. Lovísa er all in og hefur sett góðan og sterkan svip á starfið okkar.

Klara Fanney Stefánsdóttir
Þjálfari

Klara Fanney Stefánsdóttir

Klara er geislafræðingur á SAK og hefur verið hjá okkur í TFW í mjög mörg ár. Hún er með TFW Level 1 og Level 2 þjálfarréttindi. Klara er ákveðin, skipulögð og með sterka rödd. Klara er alltaf til að hjálpa öllum.

Viltu æfa með okkur?

Skráðu þig í dag og byrjaðu ferðina þína með TFW Akureyri.

Kaupa kort